Fótbolti

Nýfæddur sonur Arons Einars horfði á pabba sinn spila | Mynd

Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson missti af fæðingu sonar síns þar sem hann var með íslenska landsliðinu í Kasakstan.

Aron Einar kom seinna til móts við liðið en aðrir leikmenn þar sem unnusta, Kristbjörg Jónasdóttir, hans var komin á tíma. Það var þó ekki fyrr en hann var kominn til Kasakstan sem Kristbjörg fæddi þeim son.

Litli guttinn missti þó ekki af leiknum því Kristbjörg og sonurinn horfðu á Aron spila sigurleikinn gegn Kasakstan í gær.

Aron birti mynd af þeim á Instagram, sem má sjá hér að neðan, og þar segist hann ekki geta beðið eftir að hitta þau.

Hann og Eiður Smári héldu heim á leið í dag en kona Eiðs Smára á von á sér. Aðrir leikmenn héldu áfram til Eistlands þar sem liðið spilar vináttulandsleik á þriðjudag.


Tengdar fréttir

Strákarnir sungu fyrir Aron og færðu honum köku

„Það var samt jafnframt erfitt að sætta sig við það að missa af þessu því auðvitað vildi ég vera þarna þegar sá litli fæddist,“ sagði Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×