Viðskipti innlent

Ný útgáfa af Keldunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ný útgáfa af fjármálavefnum Keldunni er komin út. Í fréttatilkynningu segir að lögð sé aukin áhersla á dýpt í miðlun fjármálaupplýsinga og eru yfirlitssíður fyrir hluta- og skuldabréfamarkaði, gjaldmiðla, verðbréfasjóði og vísitölur nú hluti af markaðsvakt Keldunnar. Þá er hægt að skoða hvert hluta- og skuldabréf sérstaklega með tilliti til viðskiptaupplýsinga, stærstu eigenda, fjárhagsupplýsinga og fjölmiðlaumfjöllunar.

„Við höfum séð mikla aukningu í vefumferð Keldunnar síðustu mánuði og fjölgun áskrifenda. Notendur fylgjast til dæmis meira með upplýsingum um séreignasparnað og svo hafa fjárhagsupplýsingar stærstu fyrirtækja landsins vakið athygli," segir Einar Oddsson vörustjóri Keldunnar í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×