Glamour

Ný talskona Chanel

Ritstjórn skrifar
Tískufyrirmyndin, rithöfundurinn, tónlistarkonan og fyrirsætan Caroline de Maigret er ný talskona franska tískuhússins Chanel. Þetta tilkynnti hún á Instagram- síðu sinni í gær. 

Flestir tískuunnendur þekkja til Caroline en hún er einn af höfundum bókarinnar „How to be Parisian wherever you are, Love, Style and Bad habits“ sem hefur farið sigurför um heiminn enda annáluð smekkona og eftirlætis myndefni götutískuljósmyndarar á tískuvikunum. 

Hún og Karl Lagerfeld eru vel til vina og hefur Caroline ófáum sinnum gengið tískupallana fyrir Chanel og verið andlit þess í auglýsingaherferðum, hún þekkir því fyrirtækið vel og verður gaman að fylgjast með þessu samstarfi áfram. 






×