Bíó og sjónvarp

Ný stikla úr Game of Thrones: Hinir dauðu eru á leiðinni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Vísir/HBO
Ný kynningarstikla fyrir sjöttu þáttaröð Game of Thrones kom í dag og óhætt er að fullyrða að hún vekji upp eftirvæntingu og spurningar.

Aðdáendur þáttaraðarinnar hafa búið sig undir það að sjá Bran Stark á nýjan leik og að systir hans Arya verði sjónlaus í Braavos. Það sem fólk bjóst ekki endilega við er að sjá Ser Davos Seaworth takast á við meðlimi The Night's Watch og meðlimi Bolton ættarinnar.

Afdrif Jon Snow eru enn óljós og þá sjást í stiklunni áhugaverðar myndir frá Braavos.

Stikluna má sjá hér að neðan en þáttaröðin hefst 25. apríl og er sýnd á Stöð 2.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×