Bíó og sjónvarp

Ný stikla fyrir Wonder Woman

Samúel Karl Ólason skrifar
Gal Gadot í hlutverki Wonder Woman.
Gal Gadot í hlutverki Wonder Woman.
Ný stikla fyrir myndina Wonder Woman, með þeim Gal Gadot og Chris Pine í aðalhlutverkum, var birt í dag. Myndin er úr söguheimi DC Comics, en við sáum fyrst Gadot í hlutverki Díönu Price í myndinni Batman V Superman.

Wonder woman fjallar um Amasónu og prinsessu sem yfirgefur heimili sitt til að berjast í fyrri heimstyrjöldinni. Hún verður frumsýnd í maí á næsta ári.

Í stiklunni má sjá atriði þar sem WW bjargar Steve Trevor, sem leikinn er af Chris Pine, frá því að vera skotinn. Þarna er nokkuð greinilega um svokallað páskaegg að ræða enda er atriðið mjög keimlíkt atriði úr upprunalega Superman myndinni með honum Christopher Reeve. Í upprunalega atriðinu bjargaði Superman Lois Lane frá því að verða skotin.

Hægt er að sjá samanburð á atriðinum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Wonder woman setur met í Hollywood

Wonder Woman er fyrsta kvikmyndin sem leikstýrð er af konu og fær meira en hundrað milljónir dala til að moða úr.

Hulunni svipt af Wonder Woman

Leikkonan Gal Gadot ærði aðdáendur sína af spennu í gær þegar hún birti fyrstu myndina af sér í gervi Wonder Woman sem væntanleg er í samnefndri kvikmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×