Bíó og sjónvarp

Ný stikla fyrir Star Wars

Samúel Karl Ólason skrifar
Fyrsta stiklan fyrir myndina Star Wars: The force awakens var birt í dag. Leikstjórinn J.J. Abrams var fenginn til að leikstýra þessari mynd sem er sjöunda kvikmyndin í Star Wars heiminum.

Það er ekki hægt að segja að stiklan sýni mikið úr myndinni eða um hvað hún sé, en þó má sjá nýja tegund geislasverðs. Sem er í höndunum á óþekktum óvini.

Myndin verður sýnd í kvikmyndahúsum í desember á næsta ári, en hún var að hluta til tekin upp á Íslandi.

Hér að neðan má sjá trailerinn fyrir nýju myndina sem og fyrir gömlu myndirnar allar.

Force Awakens A New Hope The Empire Strikes Back Return of the Jedi Phantom Menace Attack of the Clones Revenge of the Sith





Fleiri fréttir

Sjá meira


×