Bíó og sjónvarp

Ný stikla fyrir Pirates of the Caribbean: Depp hvergi sjáanlegur

Samúel Karl Ólason skrifar
Salazar kafteinn.
Salazar kafteinn.
Fyrsta stiklan fyrir fimmtu Pirates of the Caribbean kvikmyndina hefur verið birt. Dead men tell no tales virðist vera dekkri en fyrri myndir seríunnar ef marka má stikluna. Þá er Johnny Depp í hlutverki Jack Sparrow hvergi sjáanlegur.

Leikarinn Javier Bardem bregður aftur á móti fyrir  í hlutverki Salazar kafteins og virðist honum vera nokkuð illa við Jack Sparrow. 

Samkvæmt Guardian fjallar myndin um Jack Sparrow. Hann þarf að finna þrífork Poseidon til þess að berjast gegn Salazar og draugum hans.

Pirates of the Caribbean: Dead men tell no tales verður frumsýnd í maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×