Bíó og sjónvarp

Ný stikla fyrir Hungurleikana frumsýnd á Comic Con-ráðstefnunni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Stjörnur Hungurleikanna: Willow Shields, Jennifer Lawrence, Josh Hutcherson, Liam Hemsworth og NIna Jacobson.
Stjörnur Hungurleikanna: Willow Shields, Jennifer Lawrence, Josh Hutcherson, Liam Hemsworth og NIna Jacobson. vísir/getty
Comic Con-ráðstefnan hófst í San Diego í Kaliforníu í gær og stendur alla helgina. Ráðstefnan er haldin árlega og nýtur mikilla vinsælda. Upphaflega var um að ræða myndasöguráðstefnu en í dag er mesta athyglin á fjölda nýrra kvikmynda og sjónvarpsþátta sem kynnt eru á ráðstefnunni ár hvert.

Leikstjórar og leikarar sitja gjarnan fyrir svörum aðdáenda á ráðstefnunni og á fyrsta degi ráðstefnunnar í gær mættu stjörnur Hungurleikanna og kynntu seinustu myndina í seríunni, Hungurleikarnir: Hermiskaði – seinni hluti.

Jennifer Lawrence sem fer með hlutverk söguhetjunnar Katniss Everdeen í myndunum sat fyrir svörum ásamt leikurunum Josh Hutcherson, Liam Hemsworth, Willow Shields og Nina Jacobson. Þau sögðust öll vera leið yfir því að Hungurleikarnir væru nú að renna sitt skeið en myndirnar, sem byggðar eru á samnefndum bókum Suzanne Collins, hafa notið gríðarlegra vinsælda.

Leikararnir spjölluðu ekki aðeins við aðdáendur heldur var einnig frumsýnd ný stikla fyrir myndina. Hún er þó ekki enn komin á netið en í staðinn settu framleiðendurnir stutta klippu á Youtube þar sem sjá má Katniss Everdeen ásamt hernum í 13. umdæmi.

Klippuna má sjá hér að neðan og hér má sjá kynningarfundinn sem haldinn var á Comic Con í gær.


Tengdar fréttir

Hemsworth boðið hlutverk

Hunger Games-stjörnunni Liam Hemsworth hefur verið boðið aðalhlutverkið í ID Forever, sem er framhald hinnar vinsælu Independence Day sem kom út 1996.

Launahá Lawrence

Leikkonan Jennifer Lawrence hefur skrifað upp á samning þess efnis að hún fái 20 milljónir Bandaríkjadala fyrir hlutverk sitt í myndinni Passengers.

Vantar sterkari kvenpersónur: Fyrirmyndirnar mega alveg vera óþekkar

Geena Davis hefur lengi barist fyrir jafnara kynjahlutfalli í kvikmyndum og sjónvarpsefni. Eingöngu 17% persóna í barnaefni eru kvenkyns. Geena segir það hafa áhrif á sjálfsmynd stúlkna enda læri þær fljótt að taka ekki sinn skerf af plássinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×