Bíó og sjónvarp

Ný stikla: Hjartaknúsari leikur uppljóstrara

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Joseph Gordon-Levitt er hér í gervi hermannsins Snowden.
Joseph Gordon-Levitt er hér í gervi hermannsins Snowden.
Fáir menn hafa vakið meiri athygli á undanförnum árum en uppljóstrarinn Edward Snowden sem varpaði ljósi á starfsemi og hleranir Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna (NSA) árið 2013.

Nú vinnur hinn margverlaunaði leikstjóri Oliver Stone að kvikmynd um kappann, sem einfaldlega ber nafnið Snowden, og fyrirhugað er að frumsýna hana síðar á þessu ári. Oliver Stone hefur sérhæft sig í kvikmyndum sem byggðar eru, að einhverju leyti, á sannsögulegum atburðum svo sem myndir hans um forsetana John F. Kennedy og Richard Nixon og því ljóst að hann verður á heimavelli í kvikmynd sinni um Snowden.

Hjartaknúsarinn Joseph Gordon-Levitt fer með hlutverk uppljóstrarans sem bregður þó ekki fyrir í nýrri stiklu úr myndinni má sjá hér að neðan.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kvikmynd er gerð um raunir Snowdens. Sem dæmi má nefna kvikmyndina Citizenfour sem hlaut Óskarsverðlaun sem besta heimildarmyndin í febrúar.

Hér má einnig sjá þegar John Oliver lagði leið sína til Rússlands, þar sem Snowden er með hæli, og tók viðtal við uppljóstrarann fyrr á þessu ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×