Bíó og sjónvarp

Ný Star Wars mynd komin með nafn

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Nýja Star Wars myndin mun heita Star Wars: The Force Awakens. Framleiðendur myndarinnar tilkynntu þetta á Twitter í gær. Leikstjóri myndarinnar er J. J. Abrams

Tökulið myndarinnar kom til Íslands í apríl og tók upp hluta myndarinnar með aðstoð True North. Að mestu var um að ræða tökur af landslagi sem notaðar eru sem bakgrunnur þegar atriði eru tekin upp með leikurum í myndveri.

Þessi mynd er sú fyrsta í nýjum þríleik um Stjörnustríðið sem fjallar að miklu leyti um þau Loga Geimgengil, Lilju prinsessu og Han Solo og gerist þrjátíu árum eftir Return of the Jedi.


Tengdar fréttir

Upptökur hafnar á Star Wars

Aðdáendur Star Wars myndanna geta glaðst yfir því að vinnsla sé hafin á nýju myndunum.

Cara vill hlutverk í Star Wars

Ofurfyrirsætan Cara Delevingne þráir ekkert heitar en hlutverk í næstu Star Wars kvikmynd en fyrirsætan er mikill aðdáandi Stjörnustríðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×