Viðskipti erlent

Ný skíðaöpp setja skíðafólk í hættu

Finnur Thorlacius skrifar
Fleiri og fleiri skíðamenn hafa krækt sér í hugbúnað í farsíma sína, þ.e. sérstök skíðaöpp eins og Ski Track. Með slíkum búnaði má sjá svo til allt sem skíðamenn hafa aðhafst yfir skíðadaginn. Hversu langt hefur verið farið, kort af leiðinni, hversu mikla hækkun og lækkun hann hefur upplifað og síðast en ekki síst hversu hratt hefur verið farið.

Það er einmitt síðastnefndu upplýsingarnar, um hraðann, sem hafa helst sett skíðamenn í hættu, þ.e. tilhneiging þeirra til að reyna að fara sem hraðast. Frá því að þessi öpp urðu vinsæl hefur starfsfólk skíðasvæða séð breytta hegðan og læknar hafa merkt fleiri skíðaslys þar sem skíðamenn hafa farið hraðar yfir en þeir endilega ráða við.

Það er kannski full djúpt í árinni tekið að segja að þessi skíðaöpp seti fólk beinlínis í hættu, heldur ýta þau undir áhættuhegðun þeirra og af því hafa margir áhyggjur. Ekki bara fyrir hönd þeirra sem þau nýta, heldur einnig fyrir aðra skíðamenn sem fyrir henni geta orðið. Fáir skíðamenn eiga jú sína eigin brekku. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×