Lífið

Ný sjónvarpssería úr ævintýraheim GoT í bígerð

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Svo mikið er víst af efni í bókum George R.R. Martin að HBO íhugar að gera aðra sjónvarpsseríu úr bókum hans.
Svo mikið er víst af efni í bókum George R.R. Martin að HBO íhugar að gera aðra sjónvarpsseríu úr bókum hans. Vísir/Getty
Framleiðendur og handritshöfundar sjónvarpsþáttanna vinsælu Game of Thrones segja það vel mögulegt að framleidd verði önnur sjónvarsþáttaröð um ævintýrin í Westeros. Félagarnir David Benioff og Dan Weiss, sem eru allt í öllu þegar kemur að sjónvarpsþáttaröðinni, segja áhuga fyrir því að segja fleiri sögur úr ævintýraheim rithöfundarins George R. R. Martin, eftir að síðustu tvær seríum af Game of Thrones lýkur.

Michael Lombardo forstjóri HBO, sem gerir þættina, hefur mikinn áhuga á því að framleidd verði ný sjónvarpsþáttaröð eftir að Game of Thrones lýkur. Handritshöfundarnir segjast þegar vera byrjaðir að velta því fyrir sér. Bækurnar eru víst fullar af atburðum sem gerðust áður en atburðir Game of Thrones þáttanna eiga sér stað og því sé vel mögulegt að gera aðra sjónvarpsseríu sem gerist í sama heim en mörgum árum fyrr.

Aðeins 13 þættir eru eftir í Game of Thrones en þeim verður skipt niður í tvær þáttaraðir. 

NME greindi frá.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×