Lífið

Ný-sjálenskir eldri borgarar endurgerðu Taylor Swift myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Taylor Swift nýtur gríðarlegrar vinsældra.
Taylor Swift nýtur gríðarlegrar vinsældra. vísir
Taylor Swift er ein vinsælasta söngkonan í heiminum í dag og eitt vinsælasta lagið hennar er Shake it Off. Myndbandið við lagið er virkilega skemmtilegt og er erfitt að komast ekki í gott skap við að horfa á það.

Nú hefur myndbandið verið endurgert og það gerðu fimmtíu eldri borgarar Í Nýja-Sjálandi. Þau fengu aðstoð frá barnabörnum sínum og er myndbandið núna að sprengja internetið.

Í því má sjá vel aldrað fólk endurleika þetta skemmtilega myndband og til að gera það, þurfti þau að bregða sér í allra kvikinda líki.

Hér að neðan má sjá umrætt myndband og einnig upprunalega myndbandið frá Taylor Swift.

Upprunalegt myndband





Fleiri fréttir

Sjá meira


×