Bíó og sjónvarp

Ný sería af Charmed í bígerð

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þættirnir munu vera forveri gömlu þáttanna og gerast atburðir þeirra árið 1976.
Þættirnir munu vera forveri gömlu þáttanna og gerast atburðir þeirra árið 1976. Vísir/Getty
Ný sería af Charmed þáttunum er nú í bígerð. Þættirnir nutu gífurlegra vinsælda á árum áður og komu út átta seríur, frá árunum 1998 til 2006. Þættirnir fjalla um þrjár systur sem eiga það sameiginlegt að vera nornir. Huffington Post greinir frá.

Ljóst er að þær Shannen Doherty, Alyssa Milano, Holly Marie Combs og Rose McGowan sem fóru með hlutverk í upprunalegu þáttunum munu ekki birtast í nýju seríunni.

Tvær þeirra, þær Alyssa Milano og Rose McGowan hafa áður sagt að þær séu ekki tilbúnar til að endurtaka hlutverk sín í nýjum þáttum.

Framleiðsla þáttanna er á upphafsstigi og ekki er ljóst hvenær nákvæmlega gerð þeirra lýkur en þættirnir eiga að fjalla um þrjár nornir, sem að þessu sinni eru ekki systur og gerist serían á árinu 1976, fyrir atburði upprunalegu seríunnar.

Aðdáendur Charmed geta því farið að láta sig hlakka til, en Holly Marie Combs óskaði þeim góðs gengis sem munu standa að nýju seríunni á Twitter síðu sinni.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×