Tónlist

Ný plata og útgáfutónleikar hjá Helga Val

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Helgi Valur
Helgi Valur mynd/helgi valur
Tónlistarmaðurinn Helgi Valur sendi á dögunum frá sér plötuna Notes From The Underground. Þetta er þriðja plata kappans en áður hafa plöturnar Demise of Faith og Electric Ladyboy Land komið út, sú fyrri fyrir tíu árum og sú síðari fyrir tíu árum.

Titillag plötunnar er samið í Berlín og markar endalok erfiðs tímabils sem einkenndist af óreglu og geðsjúkdómum. Flest lög plötunnar eru samin á áfangaheimili en lokalag plötunnar var samið í fyrstu innlögn inn á geðdeild.

Notes from The Underground er mikilvæg heimild tilfinningalífs sprottið af undirheimunum. Helgi Valur heldur útgáfutónleika á Húrra 27.maí og kemur fram með ógrynni hæfileikaríkra tónlistarmanna. Má þar nefna Ása Þórðarson úr Muck, Úlf Alexander úr Oyama, Berg Anderson úr Grísalappalísu og Katie Buckley úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×