Tónlist

Ný plata Bjarkar óvænt komin út

Bjarki Ármannsson skrifar
Plötuumslag Vulnicura er glæsilegt eins og Bjarkar er von og vísa.
Plötuumslag Vulnicura er glæsilegt eins og Bjarkar er von og vísa.
Vulnicura, nýjasta plata Bjarkar Guðmundsdóttur, kemur út á netverslun iTunes um heim allan nú á næsta sólarhringnum. Jafnframt fá aðdáendur að sjá umslag plötunnar í fyrsta sinn.

Björk greindi í kvöld frá þessum óvæntu tíðindum á heimasíðu sinni og á samfélagsmiðlum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og líkja sumir miðlar útgáfunni við óvænta plötuútgáfu Beyoncé fyrir rúmu ári.

Í skilaboðunum sem Björk skrifaði til aðdáenda sinna og lesa má hér neðar í fréttinni lýsir hún gerð plötunnar og eys lofi á samstarfsmenn sína.

Hún segir meðal annars að Vulnicura hafi í fyrstu einkennst af ástarsorg, þrjú lög hafi verið samin rétt fyrir skilnað og þrjú þeirra rétt eftir. Hún voni þó að lögin muni nýtast fólki sem er að jafna sig eftir svipaðar aðstæður.

Björk tilkynnti í síðustu viku að von værri á nýrri plötu í mars. Mögulega hefur það haft eitthvað að gera með ákvörðunina um að gefa Vulnicura fyrr út að henni var lekið á netið fyrir tveimur dögum.

Þetta er fyrsta platan sem Björk sendir frá sér frá því að Biophilia kom út árið 2011 við frábærar undirtektir. Vulnicura kemur út á geisladisk og vínyl í mars, líkt og ráðgert var. Björk mun einnig halda nokkra tónleika í New York í vor.


Tengdar fréttir

Nýjustu plötu Bjarkar lekið á netið

Nýjasta platan frá Björk, Vulnicura, kemur út í mars en fram kemur í erlendum miðlum að plötunni hafi nú þegar verið lekið á netið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×