Bíó og sjónvarp

Ný Pee-Wee Herman mynd í bígerð

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Pee-wee Herman var vinsæll á níunda áratugnum.
Pee-wee Herman var vinsæll á níunda áratugnum.
Ný kvikmynd með Pee-Wee Herman er nú í bígerð en hún verður framleidd af Judd Apatow og gefin út af Netflix. Samkvæmt sjálfum Pee-Wee, leikaranum Paul Reubens, munu tökur hefjast á næsta ári.

Pee-Wee Herman var gríðarlega vinsæll á níunda áratugnum þegar hann var meðal annars titilkarakter hinna súrrealísku barnaþátta Pee-Wee's Playhouse og költmyndarinnar Pee-Wee‘s Big Adventure. Rubens féll svo úr náðinni þegar hann var gripinn við að fróa sér í klámbíói árið 1991.

Nú virðist sem Pee-Wee fái tækifæri til að snúa aftur. „Núna erum við farin að vinna með svo frábæru fyrirtæki,“ sagði Reubens í viðtali í nóvember og vísar þar í Netflix en gömlu Pee-Wee þættirnir og kvikmyndin urðu fáanlegar á síðunni fyrr í þessum mánuði.

Reubens skrifaði handritið að nýju myndinni ásamt grínistanum Paul Rust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×