Ný neysluviðmið mikilvæg Elsa Lára Árnadóttir skrifar 18. september 2014 07:00 Mikilvægt er að endurskoða útreikning neysluviðmiða fyrir íslensk heimili. Tilgangur neysluviðmiða er að veita heimilum í landinu upplýsingar um viðmiðin til að bera saman við áætlun eigin útgjalda. Þau koma að notum við ýmsa fjármálaráðgjöf fyrir einstaklinga og geta verið til hliðsjónar þegar teknar eru ákvarðanir um fjárhæðir sem tengjast framfærslu. Litið hefur verið svo á að neysluviðmið séu ekki endanlegur mælikvarði á hvað telst nægjanleg neysla einstakra heimila, né dómur um hvað einstakar fjölskyldur þurfa sér til framfæris.Húsnæðiskostnað inn í ný neysluviðmið Sníða þarf vankanta af núverandi neysluviðmiðum til þess að þau verði nákvæmari mælikvarði á hvað telst nægjanlegt til framfærslu fjölskyldu. Í núverandi neysluviðmiðum er húsnæðiskostnaður ekki innifalinn og helsti rökstuðningurinn fyrir því er að kostnaður við húsnæði sé svo breytilegur að ekki sé rétt að gefa út viðmið í þeim efnum. Talið hefur verið betra fyrir fjölskyldur að bæta raungjöldum við hin opinberu viðmið. Athugasemdum hefur verið komið á framfæri varðandi þetta fyrirkomulag og óskað hefur verið eftir nýjum útreikningum, þar sem tekið er tillit til húsnæðiskostnaðar. Í þessu samhengi þarf að horfa til mismunandi búsetuforma og staðsetningar húsnæðis. Með húsnæðiskostnaði er átt við allan kostnað sem fellur til vegna eigin húsnæðis eða leiguhúsnæðis.Opinbert reiknilíkan Það er morgunljóst að ýmsir fastir útgjaldaliðir hafa hækkað mikið undanfarin ár og hefur það haft áhrif á útgjöld heimilanna. Það er staðreynd að róðurinn hefur þyngst. Þess vegna er afar mikilvægt að hefja sem allra fyrst útreikning á nýjum neysluviðmiðum og vinna það í samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Jafnframt þarf að gera könnun á raunframfærslukostnaði einstaklinga og fjölskyldna. Raunframfærslukostnaðurinn verði síðan nýttur til að finna út lágmarks neysluviðmið. Nauðsynlegt er að reiknilíkan útreikninganna verði opinbert, eins og í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Má í því samhengi nefna Svíþjóð, Danmörk og Noreg.Þingsályktunartillaga lögð fram Þingmenn Framsóknarflokksins gera sér grein fyrir mikilvægi þess að útreikningur nýrra neysluviðmiða fari fram. Þess vegna hafa nokkrir úr þingmannahópnum lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að fela félags- og húsnæðismálaráðherra að hefja útreikning nýrra neysluviðmiða fyrir íslensk heimili. Samkvæmt tillögunni skulu útreikningarnir liggja fyrir á 144. þingi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hver skipaði bankaráði Landsbankans að kaupa TM? Ásthildur Lóa Þórsdóttir Skoðun Eftirliti með snyrtistofum ábótavant Halla Signý Kristjánsdóttir Skoðun Páskarnir - íhugunarhvatning Árni Stefán Árnason Skoðun Aukinn kraftur með hækkandi sól Bragi Bjarnason Skoðun Tónlist í gleði og sorg Sigurvin Lárus Jónsson Skoðun Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir Skoðun Bréf til þjóðarinnar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Tilbrigðin um enda lífsins Matthildur Björnsdóttir Skoðun Formaður geðlækna illa áttaður? Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skaðaminnkun, lækning, hroki og hleypidómar Guðbjörg Sveinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar með börn í vímuefnaneyslu og úrræði Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Páskarnir - íhugunarhvatning Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Aukinn kraftur með hækkandi sól Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tilbrigðin um enda lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tónlist í gleði og sorg Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Eftirliti með snyrtistofum ábótavant Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Markvissar aðgerðir munu skila árangri á húsnæðismarkaði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Bréf til þjóðarinnar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Einokunarmjólk? Hilmar Vilberg Gylfason skrifar Skoðun Má þjóðin ráða? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Formaður geðlækna illa áttaður? Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Hver skipaði bankaráði Landsbankans að kaupa TM? Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Að vera eða vera ekki í samkeppni við sjálfa sig Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Engin námslán fyrir fátækt fólk Gísli Laufeyjarson Höskuldsson skrifar Skoðun Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmálin koma okkur öllum við Arnar Freyr Sigurðsson skrifar Skoðun Um tímabær áform ráðherra og ótímabært frumhlaup Viðskiptaráðs Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Fríar máltíðir grunnskólabarna - merkur samfélagslegur áfangi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðuneytið er með forystu Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun, lækning, hroki og hleypidómar Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Fyrirgefðu mér mín kæra Harpa Sævar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Vikan með Gísla Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Furðulegar verðlækkanir á mörkuðum Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Varanlegt vopnahlé og sjálfstæð Palestína Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Með of mikil völd Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað ef það gýs nær höfuðborgarsvæðinu? Ingvi Gunnarsson,Sigrún Tómsdóttir,Hrefna Hallgrímsdóttir,Daði Hafþórsson skrifar Skoðun Er sniðugt að vera með tilgreinda séreign? Guðný Helga Lárusdóttir skrifar Skoðun Ekki þykjast ekki vita neitt Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Athugasemdir við eignaumsýslu Landsbanka Íslands Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Framsókn stendur með bændum og neytendum Hópur þingmanna Framsóknar skrifar Sjá meira
Mikilvægt er að endurskoða útreikning neysluviðmiða fyrir íslensk heimili. Tilgangur neysluviðmiða er að veita heimilum í landinu upplýsingar um viðmiðin til að bera saman við áætlun eigin útgjalda. Þau koma að notum við ýmsa fjármálaráðgjöf fyrir einstaklinga og geta verið til hliðsjónar þegar teknar eru ákvarðanir um fjárhæðir sem tengjast framfærslu. Litið hefur verið svo á að neysluviðmið séu ekki endanlegur mælikvarði á hvað telst nægjanleg neysla einstakra heimila, né dómur um hvað einstakar fjölskyldur þurfa sér til framfæris.Húsnæðiskostnað inn í ný neysluviðmið Sníða þarf vankanta af núverandi neysluviðmiðum til þess að þau verði nákvæmari mælikvarði á hvað telst nægjanlegt til framfærslu fjölskyldu. Í núverandi neysluviðmiðum er húsnæðiskostnaður ekki innifalinn og helsti rökstuðningurinn fyrir því er að kostnaður við húsnæði sé svo breytilegur að ekki sé rétt að gefa út viðmið í þeim efnum. Talið hefur verið betra fyrir fjölskyldur að bæta raungjöldum við hin opinberu viðmið. Athugasemdum hefur verið komið á framfæri varðandi þetta fyrirkomulag og óskað hefur verið eftir nýjum útreikningum, þar sem tekið er tillit til húsnæðiskostnaðar. Í þessu samhengi þarf að horfa til mismunandi búsetuforma og staðsetningar húsnæðis. Með húsnæðiskostnaði er átt við allan kostnað sem fellur til vegna eigin húsnæðis eða leiguhúsnæðis.Opinbert reiknilíkan Það er morgunljóst að ýmsir fastir útgjaldaliðir hafa hækkað mikið undanfarin ár og hefur það haft áhrif á útgjöld heimilanna. Það er staðreynd að róðurinn hefur þyngst. Þess vegna er afar mikilvægt að hefja sem allra fyrst útreikning á nýjum neysluviðmiðum og vinna það í samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Jafnframt þarf að gera könnun á raunframfærslukostnaði einstaklinga og fjölskyldna. Raunframfærslukostnaðurinn verði síðan nýttur til að finna út lágmarks neysluviðmið. Nauðsynlegt er að reiknilíkan útreikninganna verði opinbert, eins og í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Má í því samhengi nefna Svíþjóð, Danmörk og Noreg.Þingsályktunartillaga lögð fram Þingmenn Framsóknarflokksins gera sér grein fyrir mikilvægi þess að útreikningur nýrra neysluviðmiða fari fram. Þess vegna hafa nokkrir úr þingmannahópnum lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að fela félags- og húsnæðismálaráðherra að hefja útreikning nýrra neysluviðmiða fyrir íslensk heimili. Samkvæmt tillögunni skulu útreikningarnir liggja fyrir á 144. þingi.
Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir Skoðun
Skoðun Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar
Skoðun Um tímabær áform ráðherra og ótímabært frumhlaup Viðskiptaráðs Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Fríar máltíðir grunnskólabarna - merkur samfélagslegur áfangi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Hvað ef það gýs nær höfuðborgarsvæðinu? Ingvi Gunnarsson,Sigrún Tómsdóttir,Hrefna Hallgrímsdóttir,Daði Hafþórsson skrifar
Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir Skoðun