Ný kolategund sögð ógna bleikjustofnum 30. apríl 2009 05:00 Flatfiskur af kolaætt. Getur náð 60 sentimetra lengd. Lifir við botn frá fjöruborði niður á 100 metra dýpi.mynd/vmst
Áhugamenn um stangveiði tengja minnkandi veiði á sjóbleikju á Íslandi við strandhögg nýrrar flatfisktegundar hér við land. Flundra, einnig kölluð ósakoli, fannst fyrst hér á landi árið 1999. Hún er byrjuð að hrygna hér við land og rannsóknir sýna að hún keppir við bleikjuna um vistsvæði. Gunnar Bender, ritstjóri Stangveiðiblaðsins, hefur farið til veiða um allt land á undanförnum árum. Hann segir að samhliða landnámi flundrunnar hafi stangveiðimenn víða um land séð hversu mjög hefur dregið úr veiði á sjóbleikju, bæði í ám og vötnum þar sem útrennsli er til sjávar. „Það er alveg greinilegt hvernig þessi flatfiskur sækir á sömu svæði og sjóbleikjan. Í ám þar sem ég þekki vel til á Vesturlandi má kalla að bleikja sé horfin en á sama tíma hef ég séð torfur af flundru í ósum ánna.“ Gunnar segir að í sínum huga, og fjölmargra annarra veiðiáhugamanna, sé samband á milli landnáms flundrunnar og minnkandi fiskgengdar sjóbleikju og veiði. Flundran hefur breiðst hratt út í vistkerfinu á undanförnum áratug. Þessi nýliði í íslenskri náttúru fannst í fyrsta skipti í ósum Ölfus-ár árið 1999. Síðla árs í fyrra bárust síðan fregnir frá Miklavatni í Borgarsveit um flundru sem veiddist þar í net; en það er fyrsta staðfesta tilfellið frá Norðurlandi. Sigurður Guðjónsson, formaður Veiðimálastofnunar, vék að rannsóknum á landnámi flundrunnar í Hlíðarvatni í Selvogi á formannafundi Landssambands stangveiðifélaga í mars. Sagði hann ljóst að fiskurinn æti hrogn bleikjunnar á hrygningartíma og bleikjuseiði væru einnig áberandi í fæðuvali í vatninu. En stendur bleikjunni ógn af þessari fisktegund? „Sjóbleikjan okkar hefur vissulega gefið töluvert eftir, sérstaklega sunnan lands og vestan. En það tengi ég helst við hlýindi síðustu ára,“ segir Sigurður. „Sjóbleikjan er hánorræn tegund og Ísland má kalla suðurmörkin á útbreiðslusvæði hennar. Hins vegar breiðist þessi kolategund hratt út og mun væntanlega verða komin allan hringinn innan fárra ára. Flundran nýtir sömu svæði og bleikjan og því er komin upp samkeppni um æti og pláss og eflaust er afrán í báðar áttir. “ Sigurður segir að fljótlega verði kannað hvort veiði á þessari nýju fisktegund sé möguleg. Flundr-an er eftirsóttur matfiskur í Evrópu. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira