Bílar

Ný Ford Fiesta ST

Finnur Thorlacius skrifar
Ford Fiesta 2018.
Ford Fiesta 2018.
Ford ætlar að kynna Fiesta bíl af nýju kynslóðinni í ST-útgáfu á föstudaginn en bíllinn verður svo sýndur almenningi á bílasýningunni í Genf í kjölfarið. Ein helsta breytingin frá forveranum er að undir húddinu leynist nú 1,5 lítra EcoBoost vél í stað 1,6 lítra EcoBoost vélar.

Það þýðir ekki að aflið verði minna heldur er búist við því að það fari úr 182 hestöflum í kringum 200 hestöfl. Líklega dugar ekkert minna í samkeppninni við aðra smá “hot hatch”-bíla. Nýr Ford Fiesta mun væntanlega eiga í mikilli samkeppni við nýjan Toyota Yaris GRNM, sem er einmitt um 200 hestöfl, en hann er með 1,8 lítra vél með keflablásara.

Ford Fiesta ST mun koma á göturnar í sumar en nákvæmari tímasetning er ekki ljós. Á meðfylgjandi mynd sést því miður ekki vel hvernig bíllinn lítur út, enda er hann í feluklæðum, en það kemur allt í ljós á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×