Viðskipti innlent

Ný Airbus-vél WOW fékk nafnið Freyja

Stefán Árni Pálsson skrifar
WOW Air hefur fest kaup á tveimur glænýjum Airbus A321 flugvélum.

Sú fyrri kom til landsins í gærkvöldi og lenti á Reykjavíkurflugvelli á sjötta tímanum í dag.

Þar biðu forsetafrúin Dorrit Moussaieff og Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði flugvélarinnar til að blessa hana og gefa henni nafn, við hátíðlega athöfn. Vélin sem lenti á Reykjavíkurvelli í kvöld fékk nafnið Freyja. 

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari 365, var við athöfnina í kvöld og tók meðfylgjandi mynd. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×