Fótbolti

Nú vitum við hvað Rooney gerði og sagði í klefanum eftir tapið á móti Íslandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Wayne Rooney og Eiður Smári Guðjohnsen eftir leikinn.
Wayne Rooney og Eiður Smári Guðjohnsen eftir leikinn. Vísir/Getty
Englendingar eru ekki ennþá búnir að jafna sig eftir tapið á móti Íslandi í sextán liða úrslit Evrópumótsins síðasta sumar. Nú vitum við hinsvegar meira um hvað gerðist í klefa enska landsliðsins eftir leikinn fræga.  

Ísland vann þá 2-1 sigur í Nice og komst áfram í átta liða úrslitin á meðan stórstjörnur enska landsliðsins snéru aftur heim með skottið á milli lappanna.

Þjálfarinn Roy Hodgson er ennþá atvinnulaus og það mun taka enska landsliðið tíma að jafna sig á áfallinu að tapa á móti litla Íslandi.

Marcus Rashford er ein af framtíðarstjörnum enska landsliðsins og hann hefur nú sagt frá því hvað gerðist í búningsklefa enska landsliðsins eftir tapið á móti Íslandi 27. júní 2016.

„Þegar við duttum út á móti Íslandi á EM þá voru það gríðarleg vonbrigði. Við sátum allir hljóðir í búningsklefanum eftir leikinn og vissum ekki alveg hvernig við áttum að haga okkur. Þá stendur Wayne upp og hann segir bara eitt,“ rifjar Marcus Rashford upp í viðtali við The Playerstribune.com.

„Berið höfuðið hátt. Við höfum fyrir miklu að berjast í framtíðinni. Horfið fram á veginn,“ segir Rashford að Wayne Rooney hafi sagt eftir leikinn. Rooney gerði meira en það því að hann gekk á hvern mann fyrir sig, horfði í augu viðkomandi manns og endurtók þessi orð.

Enska landsliðið hefur spilað fjóra keppnisleiki eftir tapið á móti Íslandi og unnið þrjá þeirra. Liðið vann Slóvakíu (1-0), Möltu (2-0) og Skotland (3-0) og gerði markalaust jafntefli við Slóveníu í fyrstu leikjum sínum í undanriðli HM í Rússlandi 2018.

Mökrin sem Ragnar Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson skoruðu hjá enska landsliðinu í Nice í júní 2016 eru ennþá tvö síðustu mörkin sem enska fótboltalandsliðið fékk á sig í keppnisleik því Englendingar hafa haldið hreinu í fjórum fyrstu leikjum sínum í undankeppni HM 2018.

vísir/getty
Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×