Innlent

Nú verður hægt að rúlla upp að Stöng í hjólastól

Kristján Már Unnarsson skrifar
Sögualdarbærinn að Stöng í Þjórsárdal er að verða aðgengilegur fólki í hjólastólum. Þetta er liður í átaki, sem nú stendur yfir, til að auðvelda ferðafólki að skoða margar af merkustu fornminjum landsins. Í fréttum Stöðvar 2 var sýnt frá framkvæmdum. 

Rústirnar að Stöng eru nú undir bárujárnsþaki en þær þykja gefa einhverja bestu mynd af því hvernig hýbýli fólks voru á fyrstu öldum Íslandsbyggðar. Til að komast þangað hafa ferðamenn þurft að klöngrast um mjóa göngubrú yfir Rauðá en nú eru smiðir úr sveitinni að smíða nýja. 

„Hér er verið að byggja nýja göngubrú yfir ána hérna, leggja stíga, útsýnispall og fleira,“ segir Hermann Karlsson, húsasmiður hjá verktakafyrirtækinu Tré og Straumi.

Hermann Karlsson, húsasmiður hjá verktakafyrirtækinu Tré og Straumi.Stöð 2/Björn Sigurðsson.
Það er Minjastofnun Íslands sem stendur að verkinu en það er liður í átaki stjórnvalda til uppbyggingar á ferðamannastöðum. Af 850 milljóna króna fjárveitingu fara 106 milljónir til 17 staða sem geyma merkjar fornminjar. Stærsta hlutanum, um 30 milljónum króna, verður varið til að gera Stöng aðgengilegri fyrir ferðamenn, þar á meðal fyrir þá sem eru í hjólastólum, með breiðari og hallaminni stígum, og svo með þessari 16 metra löngu brú. 

Það var árið 1939 sem fornleifafræðingar grófu Stangarbæinn upp úr þykkum öskulögum en almennt hefur verið talið að Þjórsárdalur hafi meira og minna eyðst í miklu Heklugosi árið 1104, þótt byggð á einstaka bæjum kunni að hafa haldist eitthvað lengur. 

Þótt komið sé fram á haust segja smiðirnir okkur að enn komi töluvert af ferðamönnum að Stöng. Það séu þó aðallega útlendingar.

Bárujárnsþak er yfir fornleifunum að Stöng.Stöð 2/Björn Sigurðsson.
Göngubrúin mun ekki aðeins þjóna Stöng heldur gagnast einnig þeim sem vilja skoða leynda náttúruperlu skammt frá, Gjána. Þangað er um tuttugu mínútna gangur frá Stöng upp með Rauðá. 

„Það verður auðveldara að komast hér yfir. Nýja bílaplanið verður hér rétt við brúna. Þannig að þetta verður mikil bót,“ segir húsasmiðurinn Hermann.


Tengdar fréttir

Sjáið það sem er að gerast við Goðafoss

Útsýnispallar og göngustígar fyrir hátt í eitthundrað milljónir króna eru að verða til við Goðafoss, fjölsóttasta ferðamannastað Þingeyjarsveitar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×