Usain Bolt kemur í mark á nýju heimsmeti.
MYND/NORDIC PHOTOS/GETTY
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Jamaíkamaðurinn Usain Bolt og bandaríska konan Allyson Felix unnu bæði í kvöld sín þriðju gullverðlaun á Ólympíuleikunum í London þegar þau hjálpuðu sveitum sínum að vinna síðustu boðhlaupin á leikunum.
Usain Bolt hljóp síðasta sprettinn fyrir sveit Jamaíku í 4 x 100 metra hlaupi karla og kom í mark á nýju heimsmeti eða 36,84 sekúndum. Það dugði ekki bandarísku sveitinn að setja landsmet og koma í mark á 37.04 sekúndum eða sama tíma og gamla heimsmetið var. Sveit Trínidad og Tóbagó fékk síðan bronsið.
Usain Bolt náði ekki heimsmetunum sínum þegar hann tryggði sér gull í 100 og 200 metra hlaupunum en nú hljóp hann á fullu í gegnum markið og heimsmetið var í höfn.
Auk Usain Bolt voru í sveitinni Nesta Carter, Michael Frater og Yohan Blake en Kemar Bailey-Cole datt úr liðinu fyrir úrslitahlaupið til þess að Bolt gæti hlaupið.
Allyson Felix hljóp annan sprettinn fyrir bandarísku sveitina sem vann 4 x 400 metra hlaup kvenna. Felix varð Ólympíumeistari í 200 metra hlaupi og í gær hjálpaði hún bandarísku boðhlaupssveitinni að vinna 4 x 100 metra hlaupið á nýju heimsmeti.
Auk Allyson Felix voru í gullsveit Bandaríkjanna þær DeeDee Trotter, Francena McCorory og Sanya Richards-Ross. Bandaríska sveitin kom í mark á 3:16,87 mínútum og Bandaríkin fékk gullið í þessari grein á fimmtu leikunum í röð. Rússland fékk silfrið og bronsið fór til Jamaíka.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Guðmundur Stephensen gaf hvorki kost á sér í íslenska landsliðið á HM í París né Smáþjóðaleikana sem fram fara í lok mánaðar. Borðtenniskappinn þrítugi, sem varð á dögunum hollenskur meistari með liði...
Meira
Titus Young, fyrrum útherji hjá Detroit og St. Louis, hefur lýst sig saklausan af átta ákærum sem honum hafa verið birtar í dómssal í Kaliforníu.
Meira
Í hádeginu frumsýnir Vísir fyrsta sýnishornið úr heimildarmyndinni Ölli sem fjallar um líf og leik körfuknattleiksmannsins Örlygs Arons Sturlusonar sem af flestum er talinn vera eitt mesta efni í sögu...
Meira
Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United og núverandi sérfræðingur Sky Sports, tók skemmtilegt viðtal við Paul Scholes, leikmann Manchester United, á dögunum en leikmaðurinn hefur nú endanlega...
Meira
Sjónvarpsstöð í Bandaríkjunum ætlar næsta vetur að fara með í loftið teiknimyndaseríu þar sem Mike Tyson, fyrrum hnefaleikakappi, er í aðalhlutverki.
Meira
Jón Margeir Sverrisson er sallarólegur þótt Daniel Fox hafi slegið heimsmet hans. Ólympíumeistarinn einbeitir sér að því að bæta sinn eigin tíma og ætlar sér stóra hluti á heimsmeistaramótinu í Montre...
Meira
Keilukappinn Skúli Freyr Sigurðsson segir allt benda til þess að drykkur blandaður af nákomnum aðila hafi orðið til þess að hann féll á lyfjaprófi þann 5. febrúar síðastliðinn.
Meira
Fyrrum útherji Detroit Lions, Titus Young, er ekkert að gera sérstaka hluti þessa dagana. Honum tókst að láta handtaka sig tvisvar sinnum á innan við 15 klukkutímum. Geri aðrir betur.
Meira
Landsliðsþjálfararnir í blaki, Matthías Haraldsson hjá konunum og Apostol Apostolov hjá körlunum, eru búnir að velja lokahópa sína fyrir undankeppni HM en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt ...
Meira
Íslenski bardagamaðurinn Gunnar Nelson er einn af tuttugu framtíðarmönnum UFC ef marka má umfjöllun eins stærsta íþróttavef heims, bleacherreport.com. Þar tekur vefurinn fyrir þá tuttugu bardagaíþrót...
Meira