Viðskipti erlent

Novo hræðist ekki Brexit

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Danski lyfjarisinn Novo Nordisk stefnir að uppbyggingu í Bretlandi.
Danski lyfjarisinn Novo Nordisk stefnir að uppbyggingu í Bretlandi. vísir/pjetur
Danski lyfjarisinn Novo Nordisk ætlar að fjárfesta í nýrri rannsóknarstöð við Oxford háskóla í Bretlandi fyrir 115 milljónir punda eða 16 milljarða króna. Novo sagði í tilkynningu í gær að fjárfestingin muni skila sér að fullu innan tíu ára og munu um 100 vísindamenn vinna að því að finna nýjar leiðir til að lækna sykursýki 2.

Ákvörðunin kemur sér vel fyrir Breta og fagnaði Theresa May, forsætisráðherra landsins, sem og David Gauke fjármálaráðherra ákvörðuninni enda hafa mörg fyrirtæki haldið að sér höndum í kjölfar ákvörðunar Breta um að fara út úr Evrópusambandinu. Megnið af vinnu Novo fer þó enn fram í Danmörku en lyfjarisinn hefur einbeitt sér að því að finna lækningu við sykursýki. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×