Novator Properties tekur til starfa 28. apríl 2008 17:55 Björgólfur Thor Björgólfsson á meirihluta í novator Properties ásamt föður sínum Björgólfi Guðmundssyni.
Fasteignafélagið Novator Properties hefur tekið til starfa en félagið fjárfestir í hefðbundnum fasteignum sem og fasteignaþróunarverkefnum. Félagið er að 70% hluta í eigu Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Tæp 30% eru í eigu innlendra og erlendra fjárfesta. Um 80% eigna Novator Properties eru utan Íslands en flestar þeirra voru áður í eigu Samson Properties ehf., fasteignafélags í eigu Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Helstu eignir Novator Properties eru í Danmörku, Finnlandi, Búlgaríu og Króatíu auk Íslands. Samson Properties ehf. verður dótturfélag hins nýja félags og sér alfarið um rekstur verkefna félagsins á Íslandi. Samson Properties vinnur að tveimur stórum þróunarverkefnum hér á landi, annars vegar uppbyggingu Listaháskóla Íslands í miðborginni og hins vegar þróun verslunar- og þjónustukjarna á efri hluta Laugavegar. Forstjóri Novator Properties er Sveinn Björnsson en hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri Samson Properties frá stofnun þess árið 2006. Hjá Novator Properties starfa sérfræðingar á sviði fasteigna, fasteignaþróunar og fjármögnunar. Tveir nýir framkvæmdastjórar hafa verið ráðnir til Novator Properties, þeir Lyndon Dodd og Tomi Vannas. Báðir búa þeir yfir mikilli reynslu af fasteignatengdum rekstri og fjárfestingum. Sveinn Björnsson segir hið nýja félag veita aukin tækifæri til vaxtar: „Novator Properties er vel í stakk búið að takast á við ný og spennandi verkefni. Félagið hefur á að skipa einvala starfsliði. Reynsla hópsins sem hjá félaginu starfar sem og sterk eiginfjárstaða gerir okkur kleift að skila árangri við núverandi aðstæður en á sama tíma færa út kvíarnar og kanna nýja markaði," segir Sverrir í tilkynningu frá félaginu.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira