Glamour

Notum pilsið yfir buxurnar

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Hvort sem að þú trúir því eða ekki, þá eru stjörnurnar farnar að klæðast pilsum og kjólum yfir buxum. Þar sem tíska snýst oft í kringum það sem stjörnurnar klæðast þá er hægt að eiga von á því að þetta trend verði vinsælt á næstu misserum. 

Seinustu ár hefur almennt álit á pilsum yfir buxum verið afar slæmt. Þetta er ekki fallegasta tískan en það er hægt að láta hana virka. Hér fyrir neðan má sjá margar af smekklegustu konum heims reyna við trendið og flestum þeirra tekst ágætlega til. 





Emma Watson er óhrædd við að klæðast kjólum yfir buxur eins og má sjá á myndunum hér fyrir neðan.Mynd/Getty
Mynd/Getty
Diane Kruger er ein best klædda kona heims og auðvitað nær hún að láta kjól yfir buxur líta ómótstæðilega út.Mynd/Getty
Emily Ratajkowsi mætti í gylltri múnderingu. Mikil áhætta en það heppnaðist vel.Mynd/Getty
Gigi Hadid stekkur að sjálfsögðu á þetta trend. Gallapils yfir gallabuxur er flottara en maður þorði að vona.Mynd/Getty
Kendall Jenner klæddist öllu gráu þegar hún prófaði þetta trend. Það er mikið í gangi en ofurfyrirsætan lætur það virka ágætlega.Mynd/Getty





×