Viðskipti innlent

Norwegian og easyJet áforma ekki flug til Akureyrar

Randver Kári Randversson skrifar
Easy Jet hyggst ekki fljúga til Akureyrar að svo stöddu.
Easy Jet hyggst ekki fljúga til Akureyrar að svo stöddu. Vísir/AFP
Að sögn talsmanna flugfélaganna easyJet, Norwegian, Airberlin og German Wings eru ekki uppi áform um að hefja flug til Akureyrar. Þetta kemur fram á ferðavefnum Túristi.is.

Þar kemur fram að leitað hafi verið eftir svörum frá þessum flugfélögum í kjölfar þess að haft var eftir Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, að easyJet og Norwegian hafi sýnt flugi til Akureyrar áhuga auk þess sem þýsk lággjaldaflugfélög væru einnig að skoða þann möguleika.

Haft er eftir Bergþóri Erlingssyni hjá Flugklasanum 66N að Markaðsstofa Norðurlands og Isavia hafi fundað með Norwegian og easyJet um flug til Akureyrar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×