Lífið

North West tekur sín fyrstu skref

Hin þrettán mánaða gamla North West, dóttir Kim Kardashian og Kanye West, tók sín fyrstu skref í gær.

Kim birti mynd af þeim mæðgum á Instagram þar sem hún greindi frá því að dóttir sín hefði lokið við vikulanga sundkennslu og um leið og hún fór upp úr lauginni í gær hafi hún tekið sín fyrstu skref. Foreldrarnir voru að vonum gríðarlega stolt af dóttur sinni. 

Það er nokkuð ljóst að þau Kim og Kanye, eða Kimye eins og þau eru jafnan kölluð, ætla ekki að láta neitt fara framhjá heimsbyggðinni hvað varðar uppeldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×