Viðskipti erlent

Norskur fiskur til Rússlands gegnum krókaleiðir?

Atli Ísleifsson skrifar
Norðmenn flytja inn mikið magn lax til Rússlands.
Norðmenn flytja inn mikið magn lax til Rússlands. Vísir/Getty
Rússneskir innflytjendur ógiltu í gær samninga um kaup á norskum laxi, en margir telja að fiskurinn muni áfram berast til Rússlands gegnum krókaleiðir.

Í frétt E24 segir að einn möguleiki sé að koma norskum laxi til Rússlands gegnum Færeyjar sem eru ekki hluti af Evrópusambandinu, eða Chile sem er ekki á lista Rússa yfir þau ríki sem innflutningsbann á matvæli nær til.

Innflutningsbann Rússa á matvælum nær til allra aðildarríkja ESB, Noregs, Kanada og Bandaríkjanna og er svar við þeim viðskiptaþvingunum sem Vesturveldin beita nú Rússum.

Dagens Næringsliv hefur leitað til fjölda manna innan sjávarútvegsgeirans en enginn vill koma fram undir nafni þar sem málið sé viðkvæmt.

Þeir gera þó ráð fyrir að fiskurinn muni áfram finna sér leið á rússneskan markað. „Sagan sýnir að laxinn finnur sér alltaf leið inn á markaði,“ er haft eftir ónafngreindum heimildarmanni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×