Bílar

Norski olíusjóðurinn kærir Volkswagen vegna dísilvélasvindlsins

Finnur Thorlacius skrifar
Í höfuðstöðvum Volkswagen í Wolfsburg.
Í höfuðstöðvum Volkswagen í Wolfsburg.
Stærsti einstaki sjóður í heimi, norski olíusjóðurinn á 1,02% í Volkswagen bílasamstæðunni. Þegar upp komst um dísilvélasvindl Volkswagen síðasta haust lækkuðu hlutabréf í Volkwagen umtalsvert og tapaði olíusjóðurinn mikið á þeirri lækkun. Nú hafa forsvarsmenn olíusjóðsins kært Volkswagen vegna svindlsins, rétt eins og margur annar hluthafinn í Volkswagen.

Þó svo norski olíusjóðurinn eigi 1,02% í Volkswagen hefur hann ekki rétt á stjórnarsetu í Volkswagen og hefur gagnrýnt það fyrirkomulag að Porsche og Piech fjölskyldurnar, sem eiga 31,5% í Volkswagen, skuli ráða 50,7% atkvæða í stjórn fyrirtækisins.

Höfðu forsvarsmenn sjóðsins skrifað Volkswagen bréf vegna áhyggja af þessu fyrirkomulagi og það löngu fyrir uppgötvun dísilvélasvindlsins. Svo virðist sem þær áhyggjur hafi verið réttmætar og ef til vill hefði mátt koma í veg fyrir þennan stóra skandal hjá Volkswagen með annarri stjórnarskipan en hefur verið við líði þar síðustu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×