Erlent

Norski læknirinn vill aftur til Vestur-Afríku

Atli Ísleifsson skrifar
Silje Lehne Michalsen ræddi við fjölmiðla síðdegis í dag.
Silje Lehne Michalsen ræddi við fjölmiðla síðdegis í dag. Mynd/Skjáskot, NRK
„Fyrsta heimsókn mín varð ekki eins og ég hafði hugsað mér, en ég vona að ég geti brátt haldið af stað á ný,“ sagði Silje Lehne Michalsen, norski læknirinn sem smitaðist af ebólu í Síerra Leóne í byrjun mánaðarins.

Michalsen virtist glöð í bragði og mikið létt þegar hún hitti fjölmiðlafólk á fréttamannafundi á Ullevål-sjúkrahúsinu í Ósló nú síðdegis. Hin þrítuga Michalsen var flutt til Noregs þann 7. október eftir að hún greindist með ebólu, en fyrr í dag var greint frá því að hún væri laus við veiruna.

„Ég er svo ánægð með að flutningurinn gekk svo hratt og vandræðalaust fyrir sig. Ég er ótrúlega þakklát fyrir þá meðhöndlun sem ég fékk á Ullevål. Í dag er ég frísk og ég er lánsöm.“

Michalsen sagðist nú líða líkt og hún hafi aldrei fengið ebóluveiruna. „Þeir sem hafa verið og eru nú smitaðir í Afríku líður hins vegar á allt annan hátt.“

Michalsen starfaði fyrir Lækna án landamæra í bænum Bo í Síerra Leóne þar sem hún smitaðist ásamt þremur öðrum á móttökunni. Þrátt fyrir að hún hafi sjálf smitast af veirunni mannskæðu segist hún vilja halda aftur til starfa í Vestur-Afríku til að aðstoða við baráttuna gegn ebólufaraldrinum.

Hún sagðist óánægð með að sviðsljós fjölmiðla hafi beinst að henni, en ekki raunverulegu vandamálinu. Hvatti hún fjölmiðla til að beina sjónum sínum að Vestur-Afríku og útbreiðslu veirunnar þar. „Ég óska þess að við hefðum gert meira fyrir nokkrum mánuðum síðan,“ sagði Michalsen og bætti við að mögulegt hefði verið að bjarga fjölda mannslífa ef menn hefðu brugðist við fyrr.

Í frétt norska ríkisútvarpsins kemur fram að hún hafi þakkað fjölskyldu sinni, vinum, starfsfólki sjúkrahússins og fjölmiðlum fyrir veitta aðstoð og samstarf.

Norskir læknar staðfesta að þeir hafi í meðferðinni notast við tilraunalyf, en geta þó ekki staðfest hvaða lyf um ræðir eða í hvaða magni.


Tengdar fréttir

Norskur læknir með ebólu

Norskur læknir sem starfað hefur með Læknum án landamæra í Síerra Leóne hefur smitast af ebólu og verður flutt heim til Noregs til meðferðar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×