Innlent

Norrænusmygl: Fjórmenningarnir áfram í farbanni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá tollaeftirliti á Seyðisfirði.
Frá tollaeftirliti á Seyðisfirði. vísir
Búið er framlengja farbann yfir fjórum mönnum sem grunaðir eru um að hafa smyglað rúmlega 20 kílóum af fíkniefnum hingað til lands með Norrænu í september á síðasta ári.

Um er að ræða tvo Íslendinga og tvo Hollendinga. Farbann yfir mönnunum rann út á þriðjudag en Héraðsdómur Reykjaness féllst á kröfu lögreglunnar um að þrír þeirra skyldu áfram sæta farbanni næstu fjórar vikurnar, eða til 16. febrúar. Samkvæmt heimildum Vísis hefur annar Íslendingurinn kært þann úrskurð til Hæstaréttar.

Ekki var hins vegar fallist á kröfu lögreglunnar um að Hollendingurinn Angelo Uijleman skyldi sæta farbanni í fjórar vikur heldur var hann úrskurðaður í tveggja vikna farbann, en lögreglan kærði úrskurðinn til Hæstaréttar.


Tengdar fréttir

Norrænusmygl: Allir í farbanni fram á nýtt ár

Tveir Íslendingar og tveir Hollendingar munu sæta farbanni fram á nýtt ár en þeir eru grunaðir um að hafa smyglað 23 kílóum af sterkum fíkniefnum til landsins í september.

Eignaðist svo góða vini á Kvíabryggju

Angelo Uijleman hélt hann væri að fara í fría ævintýraferð til Íslands en var handtekinn fyrir grun um aðild að umfangsmiklu fíkniefnasmygli. Hann talar um þungbæra einangrun á Litla-Hrauni, bankamennina á Kvíabryggju og einmanaleg jól án fjölskyldunnar.

Greindarskerti Hollendingurinn umkomulaus um jólin

Fjórum mönnum sem hafa verið í gæsluvarðhaldi í tólf vikur vegna gruns um fíkniefnasmygl verður sleppt í dag. Lögreglu ekki tekist að ljúka rannsókn. 27 ára greindarskertur Hollendingur líklega settur í farbann í dag en á í engin hús að vernda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×