Viðskipti innlent

NORR11 til landsins

Óli Kristján Ármannsson skrifar
í sal Norr11. Opna á sýningarsal og verslun við Hverfisgötu.
í sal Norr11. Opna á sýningarsal og verslun við Hverfisgötu. Mynd/Norr11
Í næsta mánuði stendur til að skandinavíska húsgagna- og hönnunarfyrirtækið NORR11 opni sýningarsal og verslun við Hverfisgötu 18a í Reykjavík.

Fram kemur í tilkynningu NORR11 að fyrirtækið reki sýningarsali í Kaupmannahöfn, Berlín, London, Árósum, Lyngby og Tallinn. Reykjavík verði því sjöunda borgin þar sem opnaður verði sýningarsalur.

Framkvæmdir standa yfir í sýningarhúsnæðinu, sem er í portinu beint á móti Þjóðleikhúsinu. Sýningarsalurinn verður á tveimur hæðum í um 260 fermetrum.

Auk salarins stendur til að starfrækja íslenska vefverslun NORR11 og senda út um land allt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×