Erlent

Norður- og Suður-Kórea keppa undir sama fána

Kjartan Kjartansson skrifar
Háttsettir fulltrúar Norður- og Suður-Kóreu hafa fundað undanfarið í fyrsta skipti í tvö ár.
Háttsettir fulltrúar Norður- og Suður-Kóreu hafa fundað undanfarið í fyrsta skipti í tvö ár. Vísir/AFP
Stjórnvöld í Norður- og Suður-Kóreu hafa náð samkomulagi um að íþróttamenn ríkjanna keppi undir sameiginlegum fána Kóreu á vetrarólympíuleikunum í Suður-Kóreu í næsta mánuði. Nágrannaríkin ætla jafnframt að stilla upp sameiginlegu kvennaliði í íshokkí.

Vetrarólympíuleikarnir fara fram í Pjeongtsjang í Suður-Kóreu dagana 9.-27. febrúar. Breska ríkisútvarpið BBC segir að þjálfari íshokkíliðs sunnanmanna hafi lýst áhyggjum af því að stilla upp sameiginlegu liði því það geti skaðað möguleika þeirra á að vinna til verðlauna.

Viðræður ríkjanna tveggja eru þær fyrstu í tvö ár. Mikil spenna hefur ríkt á Kóreuskaga undanfarna mánuði vegna tilrauna stjórnvalda í Pjongjang með kjarnavopn og langdrægar eldflaugar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×