Fótbolti

Nordsjælland tapaði niður tveggja marka forystu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Rúnar Alex hefur haft mikið að gera í búningi Nordsjælland
Rúnar Alex hefur haft mikið að gera í búningi Nordsjælland vísir/getty
Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Nordsjælland sem tapaði 3-2 á heimavelli gegn SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Nordsjælland var 2-0 yfir í hálfleik en Rúnar Alex þurfti í þrígang að sækja boltann í mark sitt í seinni hálfleik.

Nordsjælland er með 7 stig í 12. sæti deildarinnar, því þriðja neðsta, eftir 9 umferðir en SönderjyskE lyfti sér úr botnsætinu og upp í 10. sætið með 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×