Viðskipti innlent

Norðmenn stefna enn norðar með olíuboranir

Kristján Már Unnarsson skrifar
Oddný Harðardóttir í Þrándheimi í hópi ráðherra og olíuforstjóra. Hægra megin við hana standa olíumálaráðherrar Bandaríkjanna og Noregs.
Oddný Harðardóttir í Þrándheimi í hópi ráðherra og olíuforstjóra. Hægra megin við hana standa olíumálaráðherrar Bandaríkjanna og Noregs.
Þátttaka áhrifamestu ríkja um olíuvinnslu á Norðurslóðum í ráðstefnu í Noregi í vikunni er skýr vísbending um að alþjóðasamfélagið vilji nýta auðlindir norðursins, en með öruggum hætti. Þetta er túlkun helsta sérfræðings Norðmanna um olíuiðnaðinn, Hans Henrik Ramm, í grein sem hann nefnir "Skýr sýn til norðurs".

Norski olíumálaráðherrann Ola Borten Moe bauð til ráðstefnunnar í Þrándheimi. Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra var þar í hópi gesta og flutti erindi. Þar lýsti hún áformum Íslendinga á Drekasvæðinu og sagði íslensk stjórnvöld leggja áherslu á að gera þurfi strangar öryggiskröfur til olíuborunar á heimskautasvæðinu.

Hans Henrik Ramm segir að mikilvægasti gestur fundarins hafi þó verið innanríkisráðherra Bandaríkjanna, hinn valdamikli Ken Salazar, en undir hann heyra olíumál vestra. Ríkisstjórnir Rússlands, Kanada, Bretlands, Ástralíu sem og allra Norðurlandanna voru meðal þeirra sem sendu fulltrúa sína. Forystumenn stærstu olíufélaga heims tóku einnig þátt í ráðstefnunni; ExxonMobil, Shell, BP, Statoil, ConocoPhillips og Cazprom.

 

Olíumálaráðherra Íslands. Fyrir aftan standa olíumálaráðherrar Bandaríkjanna og Noregs og ráðherra Kanada í málefnum frumbyggja og Norðurslóða.
Greinarhöfundur hrósar norska olíumálaráðherranum fyrir skýra framtíðarsýn til norðurs og fyrir stjórnkænsku. Hann hafi notað tækifærið til að kynna 22. olíuleitarútboð Noregs sem muni setja olíuvinnslu í Barentshafi virkilega á fulla ferð. Þar er meðal annars opnað á olíuleit norðan 74. breiddargráðu.

Jafnframt hafi ráðherrann viðrað þá langtímasýn að olíuvinnsla færðist ennþá nær Norðurpólnum á næstu 25-30 árum og alla leið að hafísröndinni í Norður-Íshafinu, að því tilskyldu að öryggi væri tryggt og tækni leyfði. Engin ástæða væri til að stöðva í suðurhluta Barentshafs.

Hans Henrik Ramm segir að ekki muni skorta mótmæli frá grænum þrýstihópum en segir að þeir muni tala fyrir daufum eyrum enda með tapað spil nú þegar.


Tengdar fréttir

Bítill vill að Norðurheimskautið sé látið í friði

Grænfriðungar eru að hefja herferð til að fá Norðurheimskautið friðlýst af Sameinuðu Þjóðunum. Stefnt er að því að safna milljón undirskriftum undir yfirlýsingu þar sem farið er fram á að olíurannsóknum og ósjálfbærum fiskveiðum verði hætt.

Oddný komin í hóp olíumálaráðherra og olíuforstjóra

Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra er fulltrúi Íslands á ráðherrafundi um olíuleit á Norðurslóðum, sem fram fer í Þrándheimi í Noregi í dag. Olíu- og orkumálaráðherrar ríkja við Norðurskautið eru meðal þátttakenda á fundinum ásamt fulltrúum stærstu olíufyrirtækja heims, eins og ExxonMobil, BP, Statoil, Gazprom, ConocoPhilips og Shell.

Herferð Greenpeace gæti beinst gegn Drekasvæðinu

Alþjóðleg barátta Greenpeace gegn olíuleit á Norðurslóðum gæti beinst gegn áformum Íslendinga á Drekasvæðinu. Í frétt á Vísi í gær kom fram að Bítillinn Paul McCartney er í hópi heimsfrægra stjarna sem ætla að styðja herferð Grænfriðunga. Svæðið sem íslensk stjórnvöld hafa boðið út á Jan Mayen-hryggnum til olíuleitar og vinnslu er allt norðan heimsskautsbaugs og telst því hluti af Norðurslóðum, eins og þær eru almennt skilgreindar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×