Viðskipti erlent

Norðmenn sækja 3.200 milljarða úr olíusjóðnum

Atli Ísleifsson skrifar
Siv Jensen og Erna Solberg.
Siv Jensen og Erna Solberg. Vísir/AFP
Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að sækja 225 milljarða norskra króna, um 3.200 milljarða íslenskra króna, úr olíusjóð norska ríkisins til að standa straum af fjárlögum næsta árs.

Siv Jensen, fjármálaráðherra Noregs, kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar í morgun.

Upphæðin sem um ræðir samsvarar um þremur prósentum af sjóðnum, sem er sá stærsti sinnar tegundar í heimi.

Skattur á fyrirtæki verður lækkaður í 24 prósent og svo í 23 prósent á næsta ári, en nánar er fjallað um fjárlagafrumvarpið á vef norska ríkisútvarpsins.

Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, sagði í gær að eftir tuttugu ára góðæristímabil í Noregi stefni nú í að minnsta kosti tíu mögur ár. Sagði hún marga einstaklinga mega gera ráð fyrir minni tekjum.

Solberg sagði að leggja ætti áherslu á tæknivæðingu í velferðarmálum þannig að færri starfsmenn verði á hvern sjúkling og aukin áhersla lögð á þekkingu og menntun.


Tengdar fréttir

Tíu mögur ár framundan

Eftir 20 ára góðæristímabil í Noregi stefnir nú í að minnsta kosti tíu mögur ár, að því er Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, greinir frá






Fleiri fréttir

Sjá meira


×