Fótbolti

Norðmenn klárir með tapsinfóníu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik Noregs og Íslands árið 2014.
Úr leik Noregs og Íslands árið 2014. vísir/vilhelm
Það er aukin pressa á norska landsliðinu fyrir leikinn gegn Íslandi því tapi liðið leiknum þá verður spilað ömurlegt lag sem er kallað Tapsinfónían.

Það er norski Håvard Lilleheie  sem stendur fyrir þessari uppákomu og hann lofar því að þetta sé lag sem norsku landsliðsmennirnir vilja ekki heyra.

Hann segir að með þessu uppátæki sé hann að hvetja norska liðið enn frekar til dáða.

Þetta er líka ágætis hvatning fyrir okkar menn. Að vinna leikinn og neyða norska liðið til þess að þurfa að heyra lagið.

Hér má sjá myndband sem fjallar um gerð Tapsinfóníunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×