Viðskipti erlent

Norðmenn fjárfesta í vindorku í Bretlandi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Statoil og Statkraft eiga fyrir vindmyllugarðinn Sheringham Shoal við strönd Norfolk.
Statoil og Statkraft eiga fyrir vindmyllugarðinn Sheringham Shoal við strönd Norfolk. Statoil/Alan O'Neill.
Norsku ríkisfyrirtækin Statoil og Statkraft hafa ákveðið að reisa 67 vindmyllur úti fyrir ströndum Norfolk í Bretlandi. Heildarfjárfestingin nemur um 270 milljörðum íslenskra króna. Þar af verður hlutur Statoil um 100 milljarðar króna, eða 35 prósent, og hlutur Statkraft um 80 milljarðar króna, eða 30 prósent. Einkaaðilar verða með 35 prósent.

Vindmyllunum, sem verða 32 kílómetra frá landi á svokölluðu Dudgeon-svæði, er ætlað að framleiða orku sem nægir 410 þúsund breskum heimilum. Hver vindmylla verður sex megavött og uppsett afl því alls 402 megavött. Til samanburðar má geta þess að afl Kárahnjúkavirkjunar er 690 megavött. 

Uppsetning vindmyllanna á að hefjast árið 2016 og eiga þær að verða komnar í fullan rekstur fyrir árslok 2017. Statoil, sem leiðir verkefnið, segir í yfirlýsingu að fjárfestingin sé í samræmi við þá stefnu fyrirtækisins að hasla sér völl í endurnýjanlegum orkugjöfum í áföngum. Verkefnið muni styrkja stöðu Statoil í Bretlandi. 

Norsku ríkisfyrirtækin höfðu áður látið reisa 88 vindmyllur á Sheringaham-svæðinu á svipuðum slóðum en nær landi upp á samtals 317 megavött.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×