Viðskipti erlent

Noma að opna nýjan veitingastað í Kaupmannahöfn?

Atli Ísleifsson skrifar
Noma er til húsa í uppgerðu pakkhúsi í Christianshavn í Kaupmannahöfn.
Noma er til húsa í uppgerðu pakkhúsi í Christianshavn í Kaupmannahöfn. Mynd/Wikipedia
Orðrómur er nú uppi um að Noma, einn besti veitingastaður heims, muni opna nýjan stað í Kaupmannahöfn. Danska vefsíðan aok.dk greinir frá.

Að sögn aok.dk hyggst Noma opna nýjan stað í lok ársins eða byrjun næsta árs, en leit á nú að standa yfir að hentugum stað. Í svari Nova við fyrirspurn aok.dk segir að sem stendur sé ekki hægt að staðfesta eitt né neitt. „Það eins sem við getum sagt er að árið 2015 verður spennandi ár fyrir Noma.“

Aok.dk greinir jafnframt frá því að orðrómur sé uppi um að Kristian Baumann, kokkur á Noma, muni fá það verkefni að stýra eldamennskunni á nýja staðnum.

Noma hefur verið margoft verið kosinn besti veitingastaður heims en hann er til húsa í uppgerðu pakkhúsi í Christianshavn í Kaupmannahöfn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×