Sport

NM í fimleikum haldið á Íslandi um helgina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Irina Sazonova er á leið á Ólympíuleikana fyrst íslenskra kvenna en fyrst keppir hún á NM.
Irina Sazonova er á leið á Ólympíuleikana fyrst íslenskra kvenna en fyrst keppir hún á NM. Vísir/Ernir
Norðurlandamótið í áhaldafimleikum fer fram í Laugarbóli um helgina en þetta er stærsti viðburður ársins hjá Fimleikasambandinu.

Keppni unglinga hefst á morgun, 7. maí, klukkan 10.00. Keppni fullorðinna hefst síðan klukkan 15.00 en þar er líka keppt í liðakeppni og fjölþraut eins og hjá unglingunum.

Landsliðsþjálfarar kvenna hafa valið landsliðshópa sína fyrir NM. Keppt er á heimavelli Ármenninga en fjórir Ármenningar eru í íslenska landsliðinu og því á algjörum heimavelli á NM þetta árið.

Ein af þeim er Irina Sazonova sem vann sér sæti á Ólympíuleikunum á dögunum, fyrst íslenskra fimleikakvenna. Þetta hefur verið flott og sögulegt fimleikaár til þessa og það er von á fimleikaveislu um helgina.



Landsliðshópur kvenna á NM 2016:

Agnes Suto - Gerpla

Dominiqua Alma Belányi - Ármann

Irina Sazonova - Ármann

Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir - Björk

Tinna Óðinsdóttir - Björk

Til vara:

Andrea Ingibjörg Orradóttir - Björk

Norma Dögg Róbertsdóttir - Björk



Landsliðshópur karla á NM 2016:

Arnþór Daði Jónasson - Gerpla

Guðjón Bjarkir Hildarsson - Gerpla

Hrannar Jónsson - Gerpla

Hróbjartur Pálmar Hilmarsson - Gerpla

Jón Sigurður Gunnarsson - Ármann

Sigurður Andrés Sigurðarson - Ármann

Valgað Reinhardsson - Gerpla




Fleiri fréttir

Sjá meira


×