Innlent

Njörður leiðir listann í Hveragerði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Valdimar Thorlacius
Tillaga uppstillinganefndar að framboðslista Samfylkingarinnar og óháðra í Hveragerði til bæjarstjórnarkosninga 2014 var samþykkt einróma á félagsfundi í gærkvöldi. Framboðslistann skipar fólk með fjölbreyttan bakgrunn, menntun og störf en jafnt kynjahlutfall er á listanum að því er segir í tilkynningu.

Njörður Sigurðsson sagnfræðingur og sviðsstjóri á Þjóðskjalasafni Íslands skipar efsta sæti listans. Í öðru sæti er Viktoría Sif Kristinsdóttir, grunnskólakennari og verkefnastjóri við Grunnskólann í Hveragerði.

Guðjón Óskar Kristjánsson bifvélavirki og tónlistarmaður í Hveragerði skipar þriðja sætið og í fjórða sæti er Bjarney Sif Ægisdóttir náms- og starfsráðgjafi við Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Listann skipa:

1. Njörður Sigurðsson, sagnfræðingur

2. Viktoría Sif Kristinsdóttir, grunnskólakennari og verkefnastjóri

3. Guðjón Óskar Kristjánsson, bifvélavirki og tónlistarmaður

4. Bjarney Sif Ægisdóttir, náms- og starfsráðgjafi

5. Walter Fannar Kristjánsson, atvinnubílstjóri

6. Álfhildur E. Þorsteinsdóttir, talmeinafræðingur

7. Davíð Ágúst Davíðsson, innkaupafulltrúi

8. Kristbjörg Erla Hreinsdóttir, viðskiptafræðingur

9. Erla María Gísladóttir, náms- og starfsráðgjafi

10. Gísli Magnússon, rafeindavirki

11. Valdimar Ingvason, húsasmiður

12. Sigurbjört Gunnarsdóttir, heilari

13. Sigurgeir Guðmundsson, sundlaugarvörður

14. Anna Sigríður Egilsdóttir, förðunarfræðingur


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×