Körfubolti

Njarðvík framlengir ekki við Daníel

Dagur Lárusson skrifar
Daníel Guðni Guðmundsson.
Daníel Guðni Guðmundsson. vísir/getty
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við Daníel Guðna Guðmundsson en hann hefur verið með liðið síðustu tvö tímabilin.

Daníel hefur stýrt liði Njarðvíkur bæði með Ásgeiri Guðbjarssyni og Rúnari Inga Erlingssyni.

KR-ingar sópuðu Njarðvíkingum í sumarfrí í vikunni með því að vinna þá 81-71 í þriðju viðureign liðanna í átta liða úrslitum Dominos-deildarinnar.

Stjórn Njarðvíkur þakkar Daníel fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar en félagið tilkynnti þetta á heimasíðu sinni fyrr í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×