Innlent

Njálurefillinn hlaut menntaverðlaun Suðurlands

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Frá afhendingu Menntaverðlauna Suðurlands 2014.  Gunnhildur E. Kristjánsdóttir tók við verðlaununum fyrir hönd hópsins sem stendur að gerð refilsins.
Frá afhendingu Menntaverðlauna Suðurlands 2014. Gunnhildur E. Kristjánsdóttir tók við verðlaununum fyrir hönd hópsins sem stendur að gerð refilsins.
Menntaverðlaun Suðurlands 2014 voru afhent í gær á hátíðarfundi í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Njálurefillinn, verkefni sem unnið er að í Sögusetrinu á Hvolsvelli hlaut verðlaunin. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, veitti verðlaunin. Alls bárust tilnefningar um ellefu verkefni.

Njálurefillinn felst í að Brennu-Njálssaga er saumuð með refilsaumi í 90 metra langan refil. Hönnuður refilsins er Kristín Ragna Gunnarsdóttir, listakona og bókmenntafræðingur, en Christina M. Bengtsson og Gunnhildur E. Kristjánsdóttir eiga veg og vanda af verkefninu. Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga skipaði starfshóp til að fjalla um tilnefningarnar og var það mat starfshópsins að verkefnið sé einstakt hvað varðar fræðslugildi. Sagan verði ljóslifandi í höndum þeirra sem að verkinu koma og gamla verkefnið endurborið.

„Það gildir um alla aldurshópa hvort sem þeir eru í skóla eða ekki, Íslendinga sem aðra, að þátttaka þeirra í verkefninu fræðir viðkomandi og hver þeirra eignast hlut í verkinu. Starfshópurinn telur að verkefnið megi kynna miklu víðar og vonast til þess að verðlaunin nýtist í það að einhverju leyti,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Hér fyrir neðan má sjá tilnefnda og ástæðu tilnefninganna.

          Dr. Ásthildur Eva Bernharðsdóttir 

  • Vegna afreka á sviði rannsókna og fræðslu í áhættu- og áfallastjórnun, vegna útgáfu og framlags við að koma á fót alþjóðlegu rannsóknartengdu framhaldsnámi til meistara- og doktorsprófs á Selfossi í samstarfi við Háskólafélag Suðurlands o.fl.

    Fræðsluráð Vestmannaeyja, Grunnskóli Vestmannaeyja og ÍBV
  • Íþróttaakademía Grunnskóla Vestmannaeyja og ÍBV – leið til eflingar formlegra samskipta milli Grunnskóla Vestmannaeyja og ÍBV og draga úr brottfalli úr íþróttum á viðkvæmum aldri og vímuefnaneyslu unglinga.

    Guðbjörg Ísleifsdóttir
  • Áratuga starf við kennslu og umönnun barna á leikskólum.

    Háskólafélag Suðurlands
  • Aukning búsetugæða og styrking efnahags á Suðurlandi með uppbyggingu þekkingarsamfélags. Sérstaklega uppbyggingu og átaksverkefnum á þeim hluta Suðurlands þar sem háskólastarfsemi er með hvað minnstu móti eða á svæðinu frá Skógum til Kirkjubæjarklausturs.

    Heilsuleikskólarnir Brimver og Æskukot 
  • Heilsueflandi starf í þágu yngstu íbúa sveitarfélagsins, jógakennslu og tónlistarstarf.

    Kristín Gísladóttir

  • Kennsluforritið Eldgrímur, sem hvetur til notkunar tölvu við lestrarnám. Gagnvirkur vefur, einkum ætlaður 7-9 ára börnum.

    Leikskólinn Bergheimar
  • Margvísleg starfsemi í tengslum við menntun og þroska barna á leikskólaaldri m.a. með sérstakri áherslu á stærðfræði og eflingu læsis.

    Leikskólinn Laugalandi
  • ART þjálfun, tækni og námsmat. Þróunarverkefni sem styrkt var af Sprotasjóði.


          Margrét Tryggvadóttir

  • Áratuga farsælt starf við grunn-, leik- og tónlistarskóla og merkilegt frumkvöðlastarf.

    Njálurefillinn
  • Sýnir Njálssögu með öðru sjónarhorni í samvinnu við öll skólastig og almenning. Sýnir bæði söguna og fornt handverk.

    Silja Elsabet Brynjarsdóttir
  • Framúrskarandi frammistaða í tónlistarnámi og góð fyrirmynd.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×