Innlent

Níutíu ár að jafna útblásturinn

Soffía Waag Árnadóttir, framkvæmdastjóri Kolviðar, segir nauðsynlegt að kolefnisjafna á hverju ári.
Soffía Waag Árnadóttir, framkvæmdastjóri Kolviðar, segir nauðsynlegt að kolefnisjafna á hverju ári.

Fæstir sem kolefnis­jafna bíla sína verða á lífi þegar gróðursettu trén eru búin að binda fyrir fyrsta árið. Trén eru níutíu ár að jafna eins árs skammt af útblæstri bíls.



Á vefsíðunni kolvidur.is er hægt að reikna út hversu mörg tré þarf að gróðursetja til að jafna útblástur bifreiðarinnar á einu ári. Fólki er einnig boðið upp á að borga fyrir trén og gróðursetninguna í gegnum síðuna.

„Trén byrja strax að kolefnisjafna og þau eru gróðursett en meðalbinditími skógar eru 90 ár. Þessi þrjátíu eða fjörutíu tré sem ég keypti og lét gróðursetja fyrir árið 2007 verða því búin að binda útblástur ársins eftir 90 ár,“ segir Soffía Waag Árnadóttir, framkvæmdarstjóri Kolviðar. „Þess vegna verðurðu að kolefnisjafna á hverju ári.“



Til þess að kolefnisjafna akstur dæmigerðrar Toyota Corolla-bifreiðar fyrir árið 2007 þarf að gróðursetja 28 tré, ef gert er ráð fyrir 11.000 kílómetra akstri og tólf lítra bensíneyðslu á hverja hundrað kílómetra.

Árið 2097 verða trén 28 búin að kolefnisjafna þau þrjú tonn af koldíoxíði sem bifreiðin losaði níutíu árum áður.

-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×