Körfubolti

Níu stiga tap gegn Póllandi

Haukur er hluti af liðinu sem er í Austurríki.
Haukur er hluti af liðinu sem er í Austurríki. vísir/valli
Ísland tapaði fyrir Póllandi, 82-71, á sterku æfingarmóti í Austurríki, en undankeppni Eurobasket fer fram í þessum mánuði. Upplýsingar eru fengnar frá Karfan.is.

Ísland leiddi eftir fyrsta leikhlutannm, 17-16, en Pólverjar komu ógnasterkir inn í síðari hálfleikinn og voru átta stigum yfir í hálfleik, 37-29.

Sóknarleikur Íslands var ekki upp á marga fiska í þriðja leikhlutanum, en þeir náðu mest að minnka muninn í sex stig í síðari hálfleik. okatölur 82-71.

Ísland spilar við heimamenn í Austurríki á morgun og svo þriðji og síðasti leikur liðsins er á sunnudagin gegn Slóveníu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×