Innlent

Níu sóttu um stöðu forstjóra Lyfjastofnunar

Atli Ísleifsson skrifar
Nefnd sem heilbrigðisráðherra hefur skipað mun á næstunni fara yfir umsóknir þeirra níu umsækjenda sem sóttu um stöðuna.
Nefnd sem heilbrigðisráðherra hefur skipað mun á næstunni fara yfir umsóknir þeirra níu umsækjenda sem sóttu um stöðuna. Vísir/GVA
Níu hafa sótt um stöðu forstjóra Lyfjastofnunar en skipað verður í embættið frá 1. febrúar 2015 þegar núverandi forstjóri, Rannveig Gunnarsdóttir, lætur af störfum.

Nefnd sem heilbrigðisráðherra hefur skipað mun á næstunni fara yfir umsóknir þeirra níu umsækjenda sem sóttu um stöðuna og meta hæfni þeirra.

Heilbrigðisráðherra skipar forstjóra Lyfjastofnunar til fimm ára í senn samkvæmt lyfjalögum.

Umsækjendur um stöðu forstjóra eru eftirtaldir:

  • Aðalsteinn Jens Loftsson
  • Davíð Ingason
  • Helga Þórisdóttir
  • Jóhann Friðrik Friðriksson
  • Kristján Sverrisson
  • Rúna Hauksdóttir Hvannberg
  • Sif Ormarsdóttir
  • Sigríður Ólafsdóttir
  • Þór Sigþórsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×