Lífið

Níu hlutir sem þú vissir sennilega ekki um Pulp Fiction

Stefán Árni Pálsson skrifar
Travolta og Jackson í Pulp Fiction
Travolta og Jackson í Pulp Fiction vísir
Pulp Fiction, kvikmynd Quentin Tarantino frá 1994, er fyrir löngu orðin klassík og hafa allir helstu kvikmyndnördar og fleiri séð það meistaraverk.

Með aðalhlutverkin fóru John Travolta, Samuel L. Jackson og Uma Thurman. Pulp Fiction hlaut ein Óskarsverðlaun árið 1995 og var það fyrir besta handritið sem Tarantino skrifaði sjálfur.

YouTube síðan CineFix gefur reglulega út skemmtileg myndbönd sem sýna eldri kvikmyndir í skemmtilegu ljósi.

Nýjasta myndbandið tekur á kvikmyndinni Pulp Fiction er þar er farið í gegnum níu atriði sem þú vissir líklega ekki um myndina. Hér að neðan má sjá þessi níu atriði.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×