Nítján ára dúx á leið í Listaháskólann 26. maí 2012 10:30 Auður Lóa Guðnadóttir „
Ég hef verið að leggja hart að mér og reyna að gera mitt besta," segir Auður Lóa Guðnadóttir, nítján ára gamall dúx Fjölbrautarskólans í Breiðholti, spurð hvort árangurinn hafi komið henni á óvart. Auður Lóa fékk 9,05 í meðaleinkunn en hún lauk stúdentsprófi af listnámsbraut skólans á þremur árum. Hún hlaut að auki fjölda verðlauna fyrir námsárangur í einstökum greinum á útskriftarathöfninni, sem fór fram í Háskólabíói í gærdag. Auður Lóa segist ekki hafa verið ákveðin í því frá upphafi að klára námið á þremur árum. „Nei, ég var búin að taka eitthvað smá í ensku í fjarnámi áður og svo ákvað ég eftir fyrsta árið að það væri jafnvel bara skemmtilegra að taka þetta á þremur árum því myndlistarbrautin er í sjálfu sér bara þrjú ár." Fyrr í vikunni fékk Auður Lóa bréf þess efnis að hún hefði komist inn í myndlistardeild Listaháskóla Íslands, og þar hefur hún nám í haust. „Ég hélt eftir viðtalið að ég myndi ekki komast inn, mér fannst ég alveg klúðra því, en svo fékk ég bréf fyrr í vikunni," segir hún. Fjöldi nemenda hefur farið af listnámsbrautinni yfir í Listaháskólann og Auður Lóa segist þekkja nokkra aðra af brautinni sem hafi sótt um nú. Allir komust inn. Hún segir að námið veiti mjög góðan undirbúning. Fréttablaðið náði tali af Auði Lóu stuttu eftir að útskriftarathöfninni lauk. Hún fagnaði með veislu seinni partinn í gær. En hvað tekur svo við fram að náminu í Listaháskólanum? „Í sumar ætla ég að fara með fjölskyldunni til Parísar í þrjár vikur. Annars verð ég að vinna í Fossvogskirkjugarði." thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira